• / RB kaupir hluta eigna Teris

RB kaupir hluta eigna Teris

RB hefur gert skuldbindandi tilboð í hluta af eignum Teris þar með talið netbankalausnir, samþættingarlausnir og ýmsar fjölbankalausnir sem Teris hefur þróað. Tilboðið er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Teris áformar að útvista öðrum rekstrarþáttum en þeim sem RB kaupir til annarra tæknifyrirtækja. Fjöldi starfsmanna Teris sem vinna við þær lausnir sem RB kaupir flytjast til RB samhliða samningnum.

 

Velta RB verður eftir sameiningarferlið 3,7 milljarðar króna á ársgrundvelli. Félagið mun hafa 23% hlutdeild á markaði, en miðað við tölur frá Samkeppniseftirlitinu var tæknikostnaður banka- og sparisjóða um 16 milljarðar árið 2010.

 

Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð Teris vegna fækkunar viðskiptavina að undanförnu. Með kaupunum er tryggt áframhaldandi aðgengi smærri fjármálastofnana að ýmsum grunnlausnum sem viðskiptavinir Teris hafa nýtt sér. Þetta er til að mynda einkar mikilvægt með tilliti til áframhaldandi rekstrar Sparisjóðanna.

 

Mikil samlegðaráhrif eru af sameiningu kerfa Teris og RB. Þau samlegðaráhrif munu fljótt koma fram en um fjórðungur af heildar rekstrarkostnaði fjármálafyrirtækja er vegna tæknimála. Sameiningin er því mikilvægt skref í þá átt að lækka kostnað við tæknirekstur fjármálageirans.

 

Þorsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri Teris:
„Þetta er mikilvægur áfangi í að tryggja hagkvæman rekstur minni fjármálafyrirtækja á Íslandi. Þá horfi ég sérstaklega til Sparisjóðanna. Við hlökkum til að takast á við það verkefni með starfsmönnum RB að byggja upp öflugt fyrirtæki með heildarlausnir í upplýsingatækni fyrir fjármálafyrirtæki.“

 

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB:
„Þetta er stórt og mikilvægt skref í að breyta RB í enn öflugri þjónustuaðila við tölvudeildir bankanna. Við fögnum því að fá til liðs við okkur samheldinn hóp sem mun gera okkur enn betur kleift að lækka rekstrarkostnað fjármálastofnana.“

 

Nánari upplýsingar veita:

  • Friðrik Þór Snorrason forstjóri Reiknistofu bankanna í farsíma 841-6000 eða tölvupósti fridrik@rb.is
  • Þorsteinn Björnsson framkvæmdastjóri Teris í farsíma 864-4338 eða tölvupósti tb@teris.is