Fréttir
Spennandi morgunverðarfundur um AngularJS

09.02.2015
Fimmtudaginn 26. febrúar verður haldinn spennandi morgunverðarfundur um AngularJS í höfuðstöðvum RB í Höfðatorgi, Katrínartúni 2, á 4. hæð, milli klukkan 8:30 og 10:00.
Fimmtudaginn 26. febrúar verður haldinn spennandi morgunverðarfundur um AngularJS í höfuðstöðvum RB í Höfðatorgi, Katrínartúni 2, á 4. hæð, milli klukkan 8:30 og 10:00.
AngularJS er "javascript framework" sem auðveldar forritun á framendalausnum. Um er að ræða "open source project" sem er viðhaldið af Google.
AngularJS hefur á skömmum tíma náð mikilli útbreiðslu og er að verða eitt vinsælasta tólið til að búa til falleg og notendavæn viðmót á vefsíðum.
Framsögumaður er Kristján Hólmar Birgisson tölvunarfræðingur í Hugbúnaðarþróun RB.