Reiknistofa bankanna þróar, rekur og hýsir mörg af upplýsingatæknikerfum fjármálafyrirtækja á Íslandi. Í rekstri felst dagleg þjónusta við notendur og sérstakar vinnslur.
Vörurnar skiptast í eftirfarandi flokka.
Innlánakerfi
RB hefur hannað og rekur nokkur kerfi sem halda utan um innlán af ýmsum toga, eins og sparireikninga, innlenda gjaldeyrisreikninga og veltureikninga.
Útlánakerfi
Kerfi tengd útlánum eru þróuð með þarfir íslensks bankamarkaðar í huga og rekin af RB. Þetta kerfi annast vinnslu skuldabréfa og víxla og er eitt af stærri kerfum RB.
Greiðslumiðlun
Greiðslumiðlunarferlar í íslenska bankakerfinu eru með þeim skilvirkustu sem þekkjast. Hér á landi er nánast hægt að greiða, hverjum sem er, hvað sem er, hvenær sem er og hvar sem er að því tilskildu að aðilar eigi bankareikninga. Fjármunir eru til ráðstöfunar hjá viðtakanda um leið og greiðsla er innt af hendi hjá bankagjaldkera eða í heimabanka.
Afgreiðslukerfi
Afgreiðslukerfi RB sér um fjárhagslegar beinlínuaðgerðir í innlána og útlánakerfum allan sólarhringinn auk fyrirspurna á reikninga og lán í þessum kerfum.
Kerfið er notað í öllum bönkum hjá gjaldkerum og bakvinnslum, í hraðbönkum, netbönkum og af debetkortakerfinu.
Heimildagjöf
Kerfið svarar heimildarbeiðnum greiðslukorta, sem berast frá posum, kassakerfum, sjálfsafgreiðslutækjum og hraðbönkum innan lands og utan.
Kerfið veitir sjálft heimildir á innlend debetkort, en framsendir beiðnir á önnur kort til viðeigandi færsluhirðis og kemur svarinu til baka til afgreiðslutækisins.
Kortakerfi
RB þróar, rekur og hýsir kerfi vegna debet- og kreditkorta, rafrænna skilríkja og afgreiðslu rafrænna greiðslna eins og til dæmis vegna posa, auk þess að halda utan um samninga við fyrirtæki sem taka við debetkortum. Þess má til gamans geta að á sínum tíma var markaðssetningu debetkorta beint gegn gífurlegri tékkanotkun landsmanna sem átti sér vart hliðstæðu í heiminum.
Hjá RB er einnig rekin kortagerð sem sér um að persónugera nánast öll greiðslukort á Íslandi.
