• / Um RB
  • / Stefnumörkun

Stefnumörkun

Framtíðarsýn RB

RB byggir þjónustu sína til fyrirtækja á fjármálamarkaði á öflugum innviðum fyrirtækisins, þekkingu, rekstrar- og gagnaöryggi.

RB gegnir lykilhlutverki í hagræðingu innan íslenska fjármálamarkaðarins.

RB er alhliða þjónustumiðstöð og fyrsti valkostur fyrirtækja á fjármálamarkaði til að nútímavæða í tæknirekstri sínum.

 

Jafnréttisstefna

Árið 1998 var samin jafnréttisáætlun fyrir RB og síðar sama ár var skipuð jafnréttisnefnd innan fyrirtækisins. Í nefndinni eiga sæti þrír fulltrúar starfsmanna skipaðir af starfsmannafélagi og tveir skipaðir af forstjóra.

Hlutverk jafnréttisnefndar skiptist í megindráttum í fernt:

  • Stuðla að jafnri stöðu karla og kvenna innan RB
  • Að jafna hlut kynja innan starfssviða RB
  • Að jafnrétti sé eðlilegur hluti af starfseminni og starfsháttum RB
  • Að beita sér að lausn vandamála sem upp kunna að koma varðandi jafnréttismál starfsmanna RB