Starfsfólk Reiknistofu bankanna hefur fjölbreytilegan bakgrunn, hvað varðar menntun og starfsreynslu. Það hefur m.a. lokið grunnskólaprófi, stúdentsprófi, sveinsprófi í iðngreinum, meistaraprófi í iðngreinum, námi á háskólastigi s.s. kennaramenntun, tölvunarfræði, verkfræði, jarðfræði og viðskiptafræði, námi á meistarastigi og á doktorsstigi, svo eitthvað sé nefnt. Starfsreynslu er að finna úr upplýsingatækni hjá öðrum fyrirtækjum, verslunar og þjónustustörfum, bankastörfum, sjómennsku, menntakerfinu, iðnaðar- og framleiðslugreinum.
Starfsfólk er á aldursbilinu 20-70 ára, sumarafleysingafólk er á aldrinum frá 17-25 ára. Meðalaldur fastráðinna starfsmanna losar 40 árin.
Meðalstarfsaldur fastráðinna starfsmanna hjá fyrirtækinu er 12 ár.
Um þriðjungur starfsmanna RB eru konur og tveir þriðjungar karlar.
