Hlutverk

Reiknistofa bankanna er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem þjónar bönkum, sparisjóðum, kortafyrirtækjum og öðrum fjármálafyrirtækjum.

RB hefur þróað öll megin greiðslukerfi landsins og rekur fjárhags- og lánakerfi fyrir ýmsar fjármálastofnanir.

Hlutverk RB er að auka hagkvæmni, afköst og öryggi í íslenska fjármálakerfinu í krafti sameiginlegrar tölvuvinnslu.

Markmiðið RB er að gera íslenska fjármálakerfinu kleift að tileinka sér nýjustu tækni á hverjum tíma.

Starfsmenn RB hafa undanfarna áratugi verið í fararbroddi í tæknivæðingu íslenska efnahagslífsins.