• / Um RB
  • / Helstu verkefni

Helstu verkefni

Reiknistofa bankanna þjónar bönkum, sparisjóðum og kortafyrirtækjum með rekstri öflugustu tölvumiðstöðvar landsins. RB annast fjölbreytt og umfangsmikil verkefni á sviði bankaviðskipta. Helstu tölvukerfin eru á sviði innlána, útlána, bókhalds, gjaldeyrisviðskipta, debetkortaviðskipta, þjónustusíma og greiðsluþjónustu. Notkun debetkorta byggir á þjónustu RB allan sólarhringinn alla daga ársins. Bankar, sparisjóðir og kortafyrirtæki stunda kraftmikla upplýsingamiðlun til viðskiptavina sinna. Þáttur RB er þar meðal annars fólginn í prentun og póstlagningu reikningsyfirlita og greiðsluseðla.