Reiknistofa bankanna hf. er í eigu helstu fjármálafyrirtækja landsins, þar á meðal banka, sparisjóða og kortafyrirtækja. Fyrirtækið var stofnað 1973 sem sameignarfélag en var breytt í hlutafélag í janúar 2011.
RB er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem hefur í gegnum árin þróað hinar ýmsu fjármálalausnir, þar á meðal öll megin greiðslukerfi landsins.
Þjónusta RB er byggð á öflugum innviðum, þekkingu, rekstrar- og gagnaöryggi. Helstu viðskiptavinir RB eru bankar, sparisjóðir, kortafyrirtæki og önnur fjármálafyrirtæki.
RB starfar samkvæmt PCI-DSS staðli sem tryggir öryggi kortagagna og öll helstu kortafyrirtæki í heiminum hafa komið sér saman um. RB hefur einnig hlotið vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt alþjóðastaðlinum ISO/IEC 27001:2005.
RB hlaut upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands (Ský) árið 2011.