Prenta | Veftré

Tölvubúnaður Reiknistofu bankanna:

Reiknistofa bankanna rekur tvær stórtölvur, IBM-2094 með 16 GB innra minni og IBM-2096 einnig með 16 GB innra minni.
Stýrikerfið er Z/OS, uppsetning þess miðast við að tölvurnar vinni sem ein heild. Ef slökkva þarf á annarri hvorri vegna viðhalds eða bilunar tekur hin sjálfkrafa við verkefnum hennar.
Diskapláss tengt þessum tölvum rúmar u.þ.b. 15 TB af gögnum. Af öryggisástæðum eru flest gögn skrifuð á tvo staði með diskaspeglun. Að auki eru reglulega tekin öryggisafrit á segulbönd og eru til þess notaðir tveir „segulbandaróbótar" frá IBM.
Til viðbótar stórtölvubúnaðinum notar Reiknistofan þó nokkra netþjóna og miðlara, flestir þeirra nota stýrikerfin Windows eða IBM-AIX. Samanlagt diskapláss þeirra er rúmlega 20 TB.

        
Reiknistofa bankanna - Kalkofnsvegi 1 - 150 Reykjavík -
Sími: 569-8877 - þjónustuborð sími: 5698800 - Netfang: rb@rb.is