Reiknistofa bankanna þjónar bönkum, sparisjóðum og kortafyrirtækjum með rekstri öflugustu tölvumiðstöðvar landsins. Reiknistofan annast fjölbreytt og umfangsmikil verkefni á sviði bankaviðskipta. Helstu tölvukerfin eru á sviði innlána, útlána, bókhalds, gjaldeyrisviðskipta, debetkortaviðskipta, þjónustusíma og greiðsluþjónustu. Notkun debetkorta byggir á þjónustu Reiknistofunnar allan sólarhringinn alla daga ársins. Bankar, sparisjóðir og kortafyrirtæki stunda öfluga upplýsingamiðlun til viðskiptavina sinna. Þáttur Reiknistofunnar er þar m.a. fólginn í prentun og póstlagningu reikningsyfirlita og greiðsluseðla.