Prenta | Veftré

Hlutverk Reiknistofu bankanna er

að veita bönkum, sparisjóðum og aðilum á þeirra vegum tölvuþjónustu sem sérstaklega miðar að því að nýta kosti samvinnu um tölvuvinnslu, einkum á sviði greiðslu- og lánsfjármiðlunar. Hlutverk sitt leysir RB af hendi með rekstri eigin tölva.

Helstu markmið:

Á sviði rekstrar og skipulagsmála:

  • að hafa stjórnskipulag sem einkennist af stuttum boðleiðum og skýrri dreifingu valds og ábyrgðar
  • að hafa stjórnun sem sé þjónustusinnuð og byggð á vandaðri áætlanagerð um reksturinn, bæði varðandi verkefni og fjármál
  • að mynda góðan starfsanda, stunda öguð vinnubrögð og veita úrvals þjónustu.

Á sviði fjármála:

  • að tryggja að framleiðni fari vaxandi, bæði innan RB og hjá viðskiptavinum hennar
  • að tryggja réttláta verðlagningu, sem leiði til þess að kostnaður falli á viðskiptamennina eftir því sem til er stofnað
  • að leggja áherslu á arðsemi fjárfestinga.

Á sviði tækni- og markaðsmála:

  • að hafa skýra og afdráttarlausa stefnu í tæknimálum, sem taki mið af þeirri reynslu og fjárfestingu, sem hún er bundin af, og þeirri tækni, sem eignaraðilar koma sér saman um
  • að hafa samvinnu við aðra aðila um hugbúnaðargerð og kaupa hugbúnað, sé það hagkvæmt
  • að beita heildargæðastjórnun (Total Quality Management).

Á sviði rekstraröryggis:

  • að tryggja viðskiptamönnum sínum órofin beinlínutengsl á þjónustutíma
  • að tryggja öryggi og stundvísi í allri gagnavinnslu
  • að tryggja eigið öryggi í húsnæðismálum og aðstöðu allri.
Reiknistofa bankanna - Kalkofnsvegi 1 - 150 Reykjavík -
Sími: 569-8877 - þjónustuborð sími: 5698800 - Netfang: rb@rb.is