Prenta | Veftré

Starfsfólk Reiknistofunnar hefur fjölbreytilegan bakgrunn, hvað varðar menntun og starfsreynslu. Hér starfar fólk sem lokið hefur: grunnskólaprófi, stúdentsprófi, sveinsprófi í iðngreinum, meistaraprófi í iðngreinum, námi á háskólastigi s.s. kennaramenntun, tölvunarfræði, verkfræði, jarðfræði og viðskiptafræði svo eitthvað sé nefnt. Starfsreynslu er að finna úr upplýsingatækni hjá öðrum fyrirtækjum, verslunar og þjónustustörfum, bankastörfum, sjómennsku, menntakerfinu, iðnaðar og framleiðslugreinum.

Við erum á aldursbilinu 20 - 67 ára, sumarafleysingafólk er á aldrinum frá 17 - 25 ára, meðalaldur fastráðinna starfsmanna losar 40 árin.

Meðalstarfsaldur fastráðinna starfsmanna hjá fyrirtækinu er 12 ár.

Kynjahlutföllin eru u.þ.b. 2/5 konur og 3/5 karlar.

Reiknistofa bankanna - Kalkofnsvegi 1 - 150 Reykjavík -
Sími: 569-8877 - þjónustuborð sími: 5698800 - Netfang: rb@rb.is